Hvað er í matinn?
  • Forsíða
  • Flokkar
    • Aðalréttir
    • Eftirréttir
    • Nesti
    • Sykurlaust
    • Bakstur
    • Meðlæti
    • Morgunmatur
    • Drykkir
  • Samstarf og beiðnir
  • Forsíða
  • Flokkar
    • Aðalréttir
    • Eftirréttir
    • Nesti
    • Sykurlaust
    • Bakstur
    • Meðlæti
    • Morgunmatur
    • Drykkir
  • Samstarf og beiðnir

Hvað er í matinn?

BaksturEftirréttirSykurlaust

Himneska Hrákakan

eftir irisblondahl 2018-08-22
skrifað af irisblondahl 2018-08-22
Himneska Hrákakan

Þessi holla og góða kaka er mín go-to hrákaka og slær í gegn í hvert skiptið sem ég býð upp á hana. Hún er einföld í gerð því það þarf ekki matvinnsluvél eins og þarf fyrir flestar hrákökur og því ætti að vera á allra færi að gera hana. Einnig eru flest hráefnin sem ég nota lífræn og sykurlaus og því veit ég að hún er góð fyrir kroppinn.

Best er að geyma þessa köku í frysti en þannig helst hún góð í langan tíma og hægt að taka út hæfilegan skammt í hvert skiptið. Það þarf ekki að taka hana út löngu áður en hún er borin fram, en 15 mínútur ætti að vera passlegt. Þegar ég býð uppá hana í boði finnst mér gaman að vera búin að skera hana í sneiðar eins og á myndunum og jafnvel bjóða uppá rjóma með, en ef ég er að gera til að eiga heima til að grípa í finnst mér gott að skera hana í litla teninga.

   

Himneska Hrákakan

Penci Recipe Demo

irisblondahl Þessi holla og góða kaka er mín go-to hrákaka og slær í gegn í hvert skiptið sem ég býð upp á hana. Hún… Bakstur Himneska Hrákakan European
Fyrir: 4 Undirbúningur: 25 minutes Eldunartími: 0 minutes 0 minutes
Næringarupplýsingar 200 kalóríur 20 grams fita
Einkunn 5.0/5
( 1 kaus )

Innihaldsefni

200 gr mjúkar döðlur - Ég notaði frá Himneskri Hollustu

2 dl Kókosmjöl

2 dl Haframjöl

1 dl Isola Bio möndlumjólk

1 & 1/2 dl Möndlur

1 msk Kakó

1 msk Kókosolía

2 msk Hnetusmjör

1 msk Sweet like sugar Stevia - Ég notaði frá GoodGood brand

  

Leiðbeiningar

BOTN

  1. Klippið döðlur niður í smáa bita
  2. Setjið döðlur og möndlumjólk saman í pott
  3. Hitið þetta tvennt saman og hrærið með gaffli þar til fer að mýkjast
  4. Saxið möndlur í miðlungs smáa bita
  5. Bætið við haframjöli, kókosmjöli og möndlum
  6. Best er að bæta þessu við í nokkrum skömmtum og hræra á milli
  7. Þegar búið er að blanda þessu öllu saman er smjörpappír settur í form þannig að kantarnir standi upp úr forminu
  8. Deiginu er þrýst í botninn og þjappað vel saman
  9. Sett í frysti eða ísskáp og kælt niður á meðan að kremið er útbúið

KREM

  1. Setjið kakó, kókosolíu, hnetusmjör og steviu saman í pott og bræðið
  2. Passið að þetta sjóði ekki og takið af hellunni um leið og þetta er bráðnað saman
  3. Hellið þessu yfir kökuna og setjið í frysti til að láta harðna
  4. Þegar súkkulaðið er harðnað er kakan tilbúin til þess að vera borin fram

 

0 athugasemd
0
FacebookPinterest
irisblondahl

fyrri færsla
Tómatsúpa
næsta færsla
Kashjúhnetu og Mexíkó Kjúlli

Þér gæti einnig líkað við

Wasabi Kjúklingabaunir

2019-07-31

Pistasíu Þorskur

2019-07-19

Sykurlaus Gulrótakaka

2019-07-18

LAKK

2019-07-09

Kashjúhnetu og Mexíkó Kjúlli

2018-08-22

Marengs Hringur

2018-08-22

Sykur- og Hveitilaus Döðlukaka

2018-08-22

Íþrótta Eftirréttur

2018-08-22

Sykurlaust Epla Crumble

2018-08-22

Chia Grautur

2018-08-22

Skildu eftir athugasemd Cancel Reply

Save my name, email, and website in this browser for the next time I comment.

Leita af færslu

Vinsælar færslur

  • 1

    LAKK

    2019-07-09
  • 2

    Partý Pasta Salat

    2018-08-22
  • 3

    Marengs Hringur

    2018-08-22
  • 4

    Chia Grautur

    2018-08-22
  • 5

    Pistasíu Þorskur

    2019-07-19

Flokkar

  • Aðalréttir
  • Bakstur
  • Drykkir
  • Eftirréttir
  • Meðlæti
  • Morgunmatur
  • Nesti
  • Sykurlaust
  • Uncategorized

Um mig

Um mig

Íris Blöndahl

Ég heiti Íris Blöndahl og elska að útbúa hollan mat sem er góður fyrir kroppinn. Ég legg mikið upp úr hollustu í flestum uppskriftunum og vona að þær verði ykkur innblástur til matargerðar á heilsusamlegum réttum.

No images found!
Try some other hashtag or username
  • Facebook
  • Instagram

@2019 - Allt efni á þessari vefsíðu er í einkaeigu og er ekki til afnota annarsstaðar.


Fara efst