Hvað er í matinn?
  • Forsíða
  • Flokkar
    • Aðalréttir
    • Eftirréttir
    • Nesti
    • Sykurlaust
    • Bakstur
    • Meðlæti
    • Morgunmatur
    • Drykkir
  • Samstarf og beiðnir
  • Forsíða
  • Flokkar
    • Aðalréttir
    • Eftirréttir
    • Nesti
    • Sykurlaust
    • Bakstur
    • Meðlæti
    • Morgunmatur
    • Drykkir
  • Samstarf og beiðnir

Hvað er í matinn?

BaksturEftirréttir

Marengs Hringur

eftir irisblondahl 2018-08-22
skrifað af irisblondahl 2018-08-22
Marengs Hringur

Öðruvísi marengs kaka sem slær alltaf í gegn

Marengs Hringur

Marengs Hringur

irisblondahl Öðruvísi marengs kaka sem slær alltaf í gegn Bakstur Marengs Hringur European
Fyrir: 7 Undirbúningur: 15 mín Eldunartími: 90 mín 90 mín
Næringarupplýsingar . kalóríur . fita
Einkunn 5.0/5
( 1 kaus )

Innihaldsefni

6 Eggjahvítur

300 gr Sykur

750 ml Rjómi

2 Plötur Milka súkkulaði

Ber til skreytinga - ég notaði Jarðaber, Bláber og Granat epli 

Leiðbeiningar

  1. Setjið eggjahvítur og sykur saman í hrærivélaskál og stífþeytið þannig að ef skálin er sett á hvolf hreyfist deygið ekki í henni
  2. Takið þrjár bökunarplötur og þrjár arkir af bökunarpappír og leggið ofan á plöturnar
  3. Notið eitthvað hringlaga sem skapalón til þess að teikna hringi á bökunarpappírinn, einn hring á hvern pappír. Sjálf nota ég alltaf botn úr smelluformi
  4. Takið nú minna hringlaga skapalón, ég nota botn úr minna hringlaga smelluformi og teiknið hring eftir því inn í hringinn sem þið eruð nú þegar búin að teikna á bökunarpappírana
  5. Gott er að skipta deiginu í þrjá jafn stóra skammta til að vera viss um að þið endið ekki með of lítið deyg í síðasta hringinn
  6. Takið deygið með skeið og smyrjið inn í formið sem þið eruð búin að teikna, þ.e. við viljum hafa deigið á milli hringjanna tveggja sem þú ert búin að teikna á pappírana
  7. Þegar þetta er komið er plötunum raðað inn í heitan ofn og bakað á 130 gráðum í 90 mínútur
  8. Ástæðan fyrir því að ég baka hann svona lengi er sú að ef ég baka þá styttra finnst mér botnarnir falla aðeins saman þegar ég tek þá úr ofninum og þá verða þeir ekki eins fallegir
  9. Botnarnir eru látnir kólna og síðan er hægt að setja á þá
  10. Þegar ég gerði kökuna sem er á myndunum fyrir neðan notaði ég kökuskreytingar sprautupoka til þess að setja rjómann á en það má líka setja hann á með skeið og dreyfa jafnt úr
  11. Neðst á kökudisinn er settur botn, þar ofaná er settur rjómi. Annar botn er þá settur ofan á rjómann og rjómi settur ofan á hann. Loks er þriðji botninn settur ofan á og rjóma sprautað ofan á hann
  12. Þegar þessu er lokið er hægt að skreyta kökuna með öllu því mögulega sem þig langar til að hafa á henni

Botnarnir í þessari köku geymast vel og því er í góðu lagi að baka þá 1 – 2 dögum áður en kakan er borin fram, en ég set hins vegar alltaf rjóma, ber og nammi á hana samdægurs. Í þetta skiptið notaði ég jarðaber, bláber, granatepli og Milka súkkulaði og það heppnaðist dásamlega vel. Ég valdi að nota Milka súkkulaði því það er svo mjúkt og því í góðu lagi að skreyta kökuna með stórum bitum af því. Ef það er notað hart súkkulaði, líkt og suðusúkkulaði finnst mér bitarnir þurfa að vera mjög smáir.

0 athugasemd
0
FacebookPinterest
irisblondahl

fyrri færsla
Partý Pasta Salat
næsta færsla
Tómatsúpa

Þér gæti einnig líkað við

Sykurlaus Gulrótakaka

2019-07-18

LAKK

2019-07-09

Himneska Hrákakan

2018-08-22

Sykur- og Hveitilaus Döðlukaka

2018-08-22

Sykurlaust Epla Crumble

2018-08-22

Íþrótta Eftirréttur

2018-08-22

Sykurlausar Döðlukúlur

2018-08-22

Skildu eftir athugasemd Cancel Reply

Save my name, email, and website in this browser for the next time I comment.

Leita af færslu

Vinsælar færslur

  • 1

    LAKK

    2019-07-09
  • 2

    Partý Pasta Salat

    2018-08-22
  • 3

    Marengs Hringur

    2018-08-22
  • 4

    Chia Grautur

    2018-08-22
  • 5

    Pistasíu Þorskur

    2019-07-19

Flokkar

  • Aðalréttir
  • Bakstur
  • Drykkir
  • Eftirréttir
  • Meðlæti
  • Morgunmatur
  • Nesti
  • Sykurlaust
  • Uncategorized

Um mig

Um mig

Íris Blöndahl

Ég heiti Íris Blöndahl og elska að útbúa hollan mat sem er góður fyrir kroppinn. Ég legg mikið upp úr hollustu í flestum uppskriftunum og vona að þær verði ykkur innblástur til matargerðar á heilsusamlegum réttum.

No images found!
Try some other hashtag or username
  • Facebook
  • Instagram

@2019 - Allt efni á þessari vefsíðu er í einkaeigu og er ekki til afnota annarsstaðar.


Fara efst