Hvað er í matinn?
  • Forsíða
  • Flokkar
    • Aðalréttir
    • Eftirréttir
    • Nesti
    • Sykurlaust
    • Bakstur
    • Meðlæti
    • Morgunmatur
    • Drykkir
  • Samstarf og beiðnir
  • Forsíða
  • Flokkar
    • Aðalréttir
    • Eftirréttir
    • Nesti
    • Sykurlaust
    • Bakstur
    • Meðlæti
    • Morgunmatur
    • Drykkir
  • Samstarf og beiðnir

Hvað er í matinn?

Aðalréttir

Poké Bowl

eftir irisblondahl 2018-08-22
skrifað af irisblondahl 2018-08-22
Poké Bowl

Skemmtilegur og öðruvísi réttur sem er súper einfaldur og góður.

Poké Bowl

Poké Bowl

irisblondahl Skemmtilegur og öðruvísi réttur sem er súper einfaldur og góður. Aðalréttir Poké Bowl European
Fyrir: 2 Undirbúningur: 20 mín Eldunartími: 12 mín 12 mín
Næringarupplýsingar . kalóríur . fita
Einkunn 5.0/5
( 1 kaus )

Innihaldsefni

200 gr Hrísgrjón

250 gr Ferskur Lax t.d. frá Hafinu

2 msk Hvítvínsedik

2 msk Vorlaukur

2 msk Lime safi

1 msk Sojasósa

200 gr Vatn

1 Avocado

1/4 Agúrka

1/2 Mangó

50 gr Edamame Baunir

Kóríander eftir smekk (val)

Leiðbeiningar

  1. Setjið grjón í pott og vatn yfir og náið upp suðu
  2. Leyfið að sjóða í 10 mín og takið svo til hliðar og kælið
  3. Setjið edik yfir grjónin og hrærið í þeim til að losa þau frá hvort öðru
  4. Skerið lax niður í mátulega stóra bita og setjið í skál
  5. Hellið yfir laxinn lime safa og sojasósu og leyfið að standa í 5 mínútur
  6. Skerið niður agúrku, avocado, mangó og vorlauk
  7. Ég kaupi frosnar edamame baunir og set þær á pönnu í sirka 5 mín til að afþýðið
  8. Bætið öllu ofan á hrísgrjónin í skál og njótið
  9. Gott er að setja Chilimayo ofaná

Þessi bráðholla skál er skemmtileg, litrík, holl og einföld og tilvalin til þess að brjóta upp hefðbundna fiskinn sem maður á oft til með að gera aftur og aftur. Það er algjörlega hægt að leika sér með innihalds efnin og setja það sem hverjum og einum finnst best ofan í hana. Mér finnst gott að hafa sushi engifer og chilimayo með og hendi því alltaf ofan á hana. Þennan rétt er ekkert mál að bjóða upp á í matarboði, en það er auðveldlega hægt að vera búinn að skera niður allt og blanda því svo saman rétt áður en rétturinn er borinn fram. Þessi færsla er unnin í samstarfi við Hafið, en ég versla alltaf minn fisk þar því ég veit að þar fæ ég ferskan og nýjan fisk, sem skiptir öllu máli þegar hann er notaður í svona rétti þar sem hann er ekki eldaður. Fiskurinn í þessa uppskrift kostaði tæplega 750 kr og restin af hráefnunum er ódýr – svo það þarf ekki að vera dýrt að borða hollt og gott

0 athugasemd
0
FacebookPinterest
irisblondahl

fyrri færsla
Súkkulaði Möndlumjólk
næsta færsla
Sykur- og Hveitilaus Döðlukaka

Þér gæti einnig líkað við

Pistasíu Þorskur

2019-07-19

Pistasíu Þorskur

2019-07-16

Kashjúhnetu og Mexíkó Kjúlli

2018-08-22

Tómatsúpa

2018-08-22

Partý Pasta Salat

2018-08-22

Kjúklingur í Basil Parmesan Sósu

2018-08-22

Feta & Chili Lax

2018-08-22

Mango Chutney Kjúklingur

2018-08-22

Fitness Kjúlli

2018-08-22

Mexíkósk Kjúklingalæri í Tómatsalsa

2018-08-22

Skildu eftir athugasemd Cancel Reply

Save my name, email, and website in this browser for the next time I comment.

Leita af færslu

Vinsælar færslur

  • 1

    LAKK

    2019-07-09
  • 2

    Partý Pasta Salat

    2018-08-22
  • 3

    Marengs Hringur

    2018-08-22
  • 4

    Chia Grautur

    2018-08-22
  • 5

    Pistasíu Þorskur

    2019-07-19

Flokkar

  • Aðalréttir
  • Bakstur
  • Drykkir
  • Eftirréttir
  • Meðlæti
  • Morgunmatur
  • Nesti
  • Sykurlaust
  • Uncategorized

Um mig

Um mig

Íris Blöndahl

Ég heiti Íris Blöndahl og elska að útbúa hollan mat sem er góður fyrir kroppinn. Ég legg mikið upp úr hollustu í flestum uppskriftunum og vona að þær verði ykkur innblástur til matargerðar á heilsusamlegum réttum.

No images found!
Try some other hashtag or username
  • Facebook
  • Instagram

@2019 - Allt efni á þessari vefsíðu er í einkaeigu og er ekki til afnota annarsstaðar.


Fara efst