Sykurlaust múslí sem allir eiga að eiga

Innihaldsefni
1 Banani
1 msk Kakó
1 tsk Vanilludropar
5 Mjúkar döðlur
1 dl Haframjöl
1 dl Kókosmjöl
1 dl Kashjúhnetur
1 dl Möndlur
1 dl Sólblómafræ
1 dl Graskersfræ
1 dl Hampfræ
Leiðbeiningar
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu
- Stappið Banana
- Skerið möndlur niður í grófa bita
- Blandið öllum hráefnum saman í skál
- Dreyfið úr blöndunni á bökunarplötuna
- Bakið í 20 mín í ofni á 190°C
- Geymið í gleríláti
Þetta undursamlega múslí er alltaf til hjá mér og ég nota það helst með möndlumjólk eða út á jógúrt. Það er hinsvegar hægt að nota það í allt mögulegt, líkt og út á hafragraut, ofan á pönnukökur eða sem snarl eitt og sér.
Nánast öll hráefnin sem notuð eru í uppskriftinni eru frá Himneskri Hollustu og þessi færsla er unnin í samstarfi við Himneska Hollustu. Þær vörur fást í Krónunni, Fjarðakaup, Nettó og öðrum minni verslunum. Megin ástæðan fyrir því að ég vel að nota þessar vörur er því það er alltaf hægt að treysta á að þær séu nýjar og ferskar en þegar ég er að baka úr vörum eins og döðlum, apríkósum ofl. finnst mér lykilatriði að þær séu mjúkar og ferskar. Einnig eru þær á hagstæðu verði, í mátulega stórum umbúðum og guðdómlegar á bragðið.