Hollur og Góður kjúklingaréttur sem er fullkominn fyrir þá sem vilja borða hollt og gott.

Innihaldsefni
1 Poki Úrbeinuð Kjúklingalæri frá Rose Poultry
4 Hvítlauksrif
1 cm Engifer rót
1 Lime
Leiðbeiningar
- Skerið kjúklingalærin í munnbita og setjið í skál eða fat
- Rífið Engifer rótina á rifjárni og setjið í sér skál
- Kreistið hvítlauksrifin ofan í sömu skál
- Bætið safanum af einni límónu við og hrærið saman
- Þessu er öllu helt yfir kjúklinginn og leyft að bíða í 30 mínútur
- Salt og Pipar sett yfir kjúklinginn eftir smekk
- Kjúklingurinn er nú steiktur á pönnu í 14 mínútur eða þar til hann er full eldaður
- Ég bar hann fram með ofnbökuðu grænmeti, salati og Apríkósupestó
Ástæðan fyrir því að þessi réttur hefur alltaf verið kallaður fitness kjúklingur á mínu heimili er vegna þess hversu hollur hann er. Hann er mjög oft hafður á mánudags kvöldum og er góður til þess að byrja holla viku eftir helgarfríið. Ég vel að nota kjúklingalæri í stað þess að nota bringur því kjötið verður miklu mýkra og bragðbetra. Það er ekki aftur snúið í bringur eftir að maður prófar lærin. Ég bar þetta svo fram með ofnbökuðu brokkolí og gulrótum, salati og Aprókósupestó, en uppskrift af pestóinu má finna hér fyrir neðan.
https://xn--hvaermatinn-scb0b.is/aprikosupesto/